| Þórbergur
Þórðarson rithöfundur var fæddur á
Hala 12. mars árið 1888. Bróðir hans Steinþór
Þórðarson bóndi á Hala var fæddur
10. júní 1892. Benedikt Þórðarson bóndi
á Kálfafelli í Suðursveit var yngstur þeirra
bræðra, fæddur 20. júlí 1894.
Foreldrar þeirra
hétu Anna Benediktsdóttir og Þórður
Steinsson. Þau giftu sig á vordögum árið
1886 og hófu síðan búskap að Hala það
sama ár í sambýli við Benedikt Þorleifsson
og Guðnýju Einarsdóttur, foreldra Önnu. Sama
ættin hefur búið að Hala samfellt síðan
Benedikt og Guðný fluttu frá Hestgerði í
Suðursveit að Hala árið 1871.
,,Mér
þótti vænna um móður mína en
föður minn, og kannski er svo um flesta unglinga. Að
einhverju leyti var það af því, að mér
fannst hún skilja betur ofvitaskap minn. Þó
geri ég honum þar máski rangt til. Hann skildi
fleira en hann játaði. Hann átti það
til að tala þvert um hug sér. Að láta
í ljós viðurkenningu á uppátækjum
mínum fór í bága við kenninguna
um gagnlega vinnu; að rorra yfir teikningum, landabréfagerð
og peningasláttu og eyða tíma í fávitalegar
mælingar og skipasmíðar, - það var ekki
vinna, heldur ómagaskapur og helvítis lánleysingjaathæfi."
( Þórbergur Þórðarson ; Í Suðursveit
bls. 439: Mál og menning 1975)
Nánari upplýsingar
Við bjóðum
þér í söguferð með Þórbergi
eða landkynningarferð, eins og hann kallaði þær.
Söguferðin hefst við minnisvarðann ofan við
Hala. Um er að ræða gönguferð eða ratleik
fyrir alla fjölskylduna, þar sem söguskilti varða
leiðina. Vísbendingar eru neðst á hverju skilti
hvert næst skal halda. Einnig er á hverju skilti bókstafur
og þegar þeim hefur verið raðað saman í
lok ferðar kemur í ljós örnefni í
grenndinni.
Gönguferðin
tekur um eina klukkustund. Á leiðinni er hægt að
fræðast um örnefni og þjóðsögur,
en jafnframt að njóta þeirrar einstöku frásagnar-
og ritsnilldar er einkennir bókmenntaverk Þórbergs
Þórðarsonar. Ferðina er hægt að fara
án leiðsagnar.
Nánari upplýsingar eru í síma 478-1073
eða 893-2960.
Góða
skemmtun
|