Málþing um Einar Braga í Þórbergssetri
Málþingið hefst kl. 14:00 á uppstigningardegi 21. maí og lýkur kl. 14:00 á föstudeginum 22. maí. Fluttir verða fyrirlestrar um lífsstarf Einars Braga út frá ýmsum sjónarhornum, sem og um önnur „atómskáld“. Lesið verður úr bókum Einars Braga, en einnig farið í heimsókn að Sléttaleiti. Einar Bragi skrifaði þrjár bækur með fróðleik um Suðursveit undir heitinu, Þá var öldin önnur, þar er m.a. fjallað um búskaparhætti á Sléttaleiti á fjórða áratug síðustu aldar. Þar bjó þá Sveinn Einarsson móðurbróðir Einars, en Einar dvaldi hjá þeim hjónum á Sléttaleiti um tíma.
Guðrún Sveinsdóttir frá Sléttaleiti endurbyggði bæjarhúsið í minningu foreldra sinna og ánafnaði síðan Rithöfundasambandi Íslands húsið til minningar um Einar Braga. Þar eru ýmsar minjar sem tengjast skáldinu og verkum hans sem gaman er að skoða. Áður hafði Einar Bragi haft forgöngu um að endurbyggja smiðjuna á Sléttaleiti til að framfylgja heiti Sveins, smiðjan gæti verið að grunni til sú sama og Ingimundur Þorsteinsson forfaðir Kvískerjabræðra byggði þar, en hann flutti bæinn frá Steinum að Sléttaleiti árið 1829 eftir stórflóð og grjóthrun úr fjallinu.
Málþing Þórbergsseturs eru nú árlegur viðburður og hefur alltaf verið góð aðsókn. Það er von okkar að sem flestir leggi leið sína í Suðursveit þessa daga til að njóta skemmtunar, fróðleiks og útiveru. Að málþinginu standa að þessu sinni Háskólasetrið á Höfn Hornafirði, Þórbergssetur og Rithöfundasamband Íslands.
Dagskrá:
14:00 Pétur Gunnarsson. Einar Bragi, samtímamaður.
14:30 Eysteinn Þorvaldsson: „Ég sem orðum ann.“ Um ljóð Einars Braga.
15:10 Kaffihlé
15:30 Aðalsteinn Ásberg.„Í mildu frjóregni.“ Um ljóðaþýðingar Einars Braga.
16:00 Jórunn Sigurðardóttir: „... get með sanni sagt að ég elska Sápmi
og samísku þjóðina.“ Um Einar Braga og samískar bókmenntir.
19:00 Hátíðarkvöldverður með skemmtidagskrá
Föstudagur 22. maí
8:30-10 Morgunverður
10:00 Guðbjörn Sigurmundsson: Maðurinn í heiminum. Um tímann, ástina og
dauðann í ljóðum Stefáns Harðar Grímssonar.
10.30 Soffía Auður Birgisdóttir: Strengurinn sem tengir móður og barn
Um sjálfsæviskrif Einars Braga.
11:00 Kaffihlé
11:20 Svavar Steinarr Guðmundsson: „Af ímynduðum fundi Heideggers og
Sigfúsar Daðasonar við Miollis-torg í Provence.“
11:50 Hádegisverður
13:00 Fjölnir Torfason: Af mönnum ertu kominn. Um ættir og uppruna
Einars Braga..
13:30 Heimsókn á Sléttaleiti.
Hægt verður að fá gistingu á Hala,
Máltíðir verða seldar á Þórbergssetri. Verð fyrir þá sem taka allar máltíðir kr. 6000
Nánari upplýsingar um málþingið veitir Soffía Auður Birgisdóttir, verkefnastjóri á Háskólasetrinu á Höfn. Sími 4708042 og 8482003. Netfang:
Athygli er vakin á að vorsýningar í Þórbergssetri eru opnar. Það eru sýningarnar Sagnalist, fermingarsögur og málverkasýning Öldu Ármanna, Konan í forgrunni.
Allir velkomnir!