Skip to main content

Tónleikar með K.K

Tónleikar  með K.K í Kálfafellsstaðarkirkju,  miðvikudagskvöldið 27. júlí kl 20:30 Samverustundin er tengd gömlum sögnum tengdum Ólafi helga Noregskonungi en hann var verndardýrlingur kirkjunnar á Kálfafellsstað.
Rifjuð er upp gömul þjóðsaga um völvuna á Kálfafellsstað sem var systir  Ólafs helga og lesin saga um  líkneski af ‘Olafi helga sem gefið var til kirkjunnar upp úr aldamótunum 1700. til að hnekkja álögum völvunnar á staðnum Líkneskið er varðveitt í Þjóðminjasafninu. Lesin er frásaga Kristjáns Eldjárns af líkneskinu , síðan er K.K með tónleika eins og honum er einum lagið.. Á eftir er farið í heimsókn að Völvuleiðinu við Hellakletta og Fjölnir Torfason á Hala segir frá gömlum sögum er tengjast staðnum Einnig sýnir  hann áþreifanlega muni frá Kálfafellsstað sem varðveist hafa og sanna mátt völvunnar.og áhrif hennar á lífið í Suðursveit allt fram á okkar daga
Dagskráin er eftirfarandi: Ávarp
Séra Halldór Reynisson starfandi sóknarprestur
Upplestur
Völvan á Kálfafellstað  Þorbjörg Arnórsdóttir
Tónleikar
K.K eins og honum er einum lagið
Kvöldganga
Heimsókn að Völvuleiði  
Fjölnir Torfason segir frá
Allir velkomnir
Þórbergssetur og Kálfafellsstaðarkirkja 

Hönnuðir

Arkitekt og hönnuður byggingar eru Sveinn Ívarsson og Jón Þórisson. Hönnuður sýningar er Jón Þórisson. Textahöfundur sýningar er Jón Hjartarson leikari.

Upplýsingar

Í anddyri Þórbergsseturs er upplýsingamiðstöð þar sem starfsmenn Þórbergsseturs fræða gesti um starfsemi setursins, Þórberg Þórðarson og sögu Suðursveitar. 

Gestakomur


Gestir í dag: ... 209
Gestir þennan mánuð: ... 5531
Gestir á þessu ári: ... 23555