Bridgemót og hrossakjötsveisla í Þórbergssetri 2012
Hin árlega bridgehátíð og hrossakjötsveisla í Þórbergssetri verður helgina 21. -22. apríl. Byrjað verður að spila klukkan 14:00 á laugardegi, etið hrossakjöt kl. 20:00 og síðan spilað fram eftir kvöldi. Spilin byrja síðan aftur kl 10.00 á sunnudagsmorgni og spilað fram eftir degi.
Allir bridgeáhugamenn eru velkomnir að koma og taka þátt, eta hrossakjöt og njóta dvalar í Suðursveit eina helgi. Bridgehátíðin er haldin til minningar um Torfa Steinþórsson á Hala sem var mikill bridgeáhugamaður og stóð fyrir bridgemótum og hrossakjötsáti í Suðursveit á árum áður. Þátttökugjald er kr 17.000 á mann, innifalið er gisting í eina nótt, morgunverður, kaffi, kvöldverður og hádegisverður á sunnudegi. Þátttökugjald án gistingar er 9000 krónur og ef einhverjir vilja aðeins gæða sér á hrossakjöti kostar það krónur 4000.
Hægt er að skrá þátttöku og panta gistingu á netfangið