Skip to main content

Að loknu ári 2012

Árið 2012 hefur verið viðburðarríkt ár í Þórbergssetri eins og oft áður. Gestakomur voru tíðar og aukin aðsókn að safninu enda ekki eldgos eða önnur náttúruvá sem hafði áhrif á umferð ferðamanna eins og næstu tvö ár á undan. Ekki hefur tekist að koma tölu á þá gesti sem koma í Þórbergssetur eða hversu margar gestakomur eru, en áætlað er að það muni vera a.m.k. um 22.000 gestakomur á ári. Aðsókn á sýningar er mun minni eða áætlað um 6000 manns á árinu 2012. Umferð yfir vetrartímann hefur aukist, þar munar mestu um erlenda ferðamenn sem heimsækja Skaftafellssýslur, gista og njóta veitinga á Hala, en fræðast um leið um umhverfi og náttúru, Þórberg Þórðarson og verk hans. Ljósmyndarar dvelja oft í 4 – 5 daga og reyna að fanga litbrigði náttúrunnar á nóttu sem degi og fagna mest norðurljósum og stjörnubjörtum nóttum. Starfsemi ársins 2012 einkennist því af móttöku erlendra ferðamanna í auknu mæli, bæði einstaklingum og hópum og fræðslu til þeirra. Þannig haslar Þórbergssetur sér völl sem ferðamannastaður sem leggur áherslu á fræðandi ferðaþjónustu og persónulega þjónustu með menningarlegu ívafi auk þess sem borið er á borð fyrir gesti matur og veitingar frá Hala eða úr heimahéraði.

Árið 2012 er einnig mesta framkvæmdaárið í sögu Þórbergsseturs síðan það var opnað árið 2006 og erum við nú betur í stakk búin til að mæta þörfum erlendra ferðamanna en áður. Starfsárið hófst með gestakomum um áramót, þar sem m.a þýskir gestir létu í ljós ánægju með útgáfu Íslensks aðals á þýsku. Helstu viðburðir ársins voru eftirfarandi:

  • Í janúar voru heimsóknir ferðamanna einkum yfir áramótin og í byrjun janúar, safnið opið og í viðræðum við ferðamenn eru gefnar upplýsingar um staðinn, lífsbaráttu fólksins, náttúruna umhverfis og svo Þórberg Þórðarson og verk hans. Þetta á við um gestakomur allt árið
  • Í febrúar dvaldi 16 manna hópur Íslendinga yfir eina helgi í Þórbergssetri og naut menningardagskrár og gæddi sér á heimafengnum mat úr afurðum beint frá Hala
  • Þann 26. mars var menningardagskrá í Þórbergssetri. Karlakórinn Jökull flutti söngdagskrá og Sigurður Pálsson kynnti Bernskubók sína með klukkutíma fyrirlestri
  • Sama dag voru opnaðar tvær nýjar sýningar í Þórbergssetri, sýning á öllum frumútgáfum af verkum Þórbergs Þórðarsonar, gjöf frá Skinney, Þinganes. Gunnar Ásgeirsson forstjóri mætti á staðinn og afhenti gjöfina
  • Einnig var sett upp sýning á styttunum hans Sobeggi afa, gjöf frá Helgu Jónu Ásbjarnardóttur til Þórbergsseturs
  • Keyptir voru nýir sýningarskápar og sett upp sýning af munum frá Hala og gömlu bókunum sem lesnar voru í fjósbaðstofunni á Hala. Sögusýningar um landnám og fornminjar á Steinadal eru ennþá uppi svo og myndasýning um gönguferð í Innri – Veðurárdal
  • Hin árlega hrossakjötsveisla og bridgemót var á sínum stað í aprílmánuði nánar tiltekið 22. apríl og var fjölmennasta hátíðin frá upphafi. Skaftfellingakórinn kom í heimsókn og söng fyrir bridgespilarara og þennan dag komu amk. 120 manns í heimsókn í Þórbergssetur
  • Fjölmargir hópar komu í Þórbergssetur að skoða safnið og nutu leiðsagnar, þ.á. m. hópar eldri borgara, orlofskonur í skemmtiferðum, ungar stúlkur í Gradualekór Langholtskirkju komu í heimsókn og sungu en kórstjórinn Jón Stefánsson hafði lesið fyrir meðlimi kórsins úr Suðursveitarbókum Þórbergs og kynnt þeim verk hans fyrir heimsóknina.
  • Í maí gistu margir gönguhópar á Hala og nutu þjónustu og skoðuðu safnið.
  • Leiðsögumannaskóli Íslands kom í Þórbergssetur í sinni árlegu námsferð um landið,
  • Leikskóli Hornafjarðar kom með litlu gestina sína í heimsókn og orlofskonur og eldri borgarar víðs vegar af landinu komu og dvöldu í styttri eða lengri tíma.
  • Gestir af alþjóðlegri ráðstefnu Háskólasetursins á Höfn hlýddu á erindi Soffíu Auðar Birgisdóttur um Þórberg Þórðarson þann 16. maí í Þórbergssetri .
  • Skipt var um öll textaspjöldin á aðalsýningunni um Þórberg Þórðarson og nú eru komnir enskir textar inn á öll ljósaskiltin, auk þess sem ferðamenn geta fengið þýska og franska texta í harðspjaldabókum í hendurnar inn á sýningunni.
  • Þrír bókmenntafræðingar voru starfandi í Þórbergssetri og á gistiheimilinu á Hala í sumar og tóku m.a. á móti fjórtán frönskum hópum 40 – 45 manns í hvert skipti og kynntu þeim Þórberg og lásu á frönsku úr verkum hans auk þess að sinna almennri leiðsögn.
  • Í júnímánuði var opnuð sýningin ,,Óþrotlegur auður” , ljósmyndasýning, þar sem textar úr verkum Þórbergs Þórðarsonar tóna við stórkostlegar náttúrumyndir tveggja ljósmyndara, Tony Prowers og Þorvarðar Árnasonar. Sýningin verðu uppi allt þetta ár og næsta vetur og vekur sýningin verðskuldaða athygli ljósmyndara og annarra gesta.
  • Bókin Steinarnir tala.. The Stones speak” var gefin út í enskri þýðingu og með skýringum háskólaprófessorsins Dr.Julian Meldon D’Arcy fyrir atbeina og tilstilli Þórbergsseturs Þar með er þeim merka áfanga í sögu Þórbergsseturs náð að hafa til sölu tvær af bókum höfundarins á erlendum tungumálum, Íslenskan aðal á þýsku og Steinarnir tala á ensku. Julian D’Arcy á sérstakar þakkir skilið fyrir þrotlausa og óeigingjarna vinnu við þýðingu bókarinnar og stuðning og aðstoð við að fá hana útgefna. Bækurnar seljast vel og hafa fengið góðar viðtökur.
  • Hinir árlegu tónleikar á Ólafsvöku í Kálfafellsstaðarkirkju voru haldnir 29. júlí. Að þessu sinni spiluðu og sungu þeir Magnús Eiriksson og Pálmi Gunnarsson og fjöldi fólks hlýddi á þá félaga, rifjuð var upp sagan um völvuna á Kálfafellsstað og tónleikagestir heimsóttu leiðið hennar undir Hellaklettum.
  • Undirritaður var nýr samstarfsamningur við mennta- og menningarráðuneytið 29. ágúst 2012 og mætti Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra á staðinn með fríðu föruneyti. Þetta var mikill gleðidagur í sögu Þórbergsseturs, ráðherra talaði um að samningur þessi væri í raun viðurkenning á að Þórbergssetur er nú eitt af þremur rithöfundasetrum Íslands, og að búið er að festa það í sessi með samfelldum rekstrarframlögum allt frá árinu 2010. Sól skein í heiði, og þessi fallegi haustdagur sannaði með óyggjandi hætti að góðir hlutir gerast í góðu veðri eins og Þórbergur segir á einum stað.
  • Á haustdögum komu sextán hádegishópar í Þórbergssetur í hádegismat, aðallega Asíubúar, þá helst Japanir og Thailendingar. Mæta varð þessum hópum á miðri leið og leyfa menningu þeirra að njóta sín hvað varðaði siðvenjur og skipulagningu, engu að síður kynntust þeir anda staðarins og íslenskri gestrisni, sveitinni og matnum, þó að tjáskipti einkenndust meira af brosi og látbragði en heimspekilegri orðræðu í anda Þórbergs.
  • Þórbergssetur tók þátt í safnahelgi á Suðurlandi 2 – 4 nóvember en vegna norðan storms og stórveðurs féll sú dagskrá sjálfkrafa niður.
  • Í nóvember og desember var mjög gestkvæmt á Hala og í Þórbergssetri, erlendir ferðamenn flykktust að og því má segja að starfsemi þessa árs hafi meir en áður tengst þjónustu við erlenda ferðamenn. Það er því fagnaðarefni að vera loks komin með svo góðar þýðingar á sýningunum og öllu efni á staðnum svo og tvær af bókum Þórbergs á erlend tungumál.
  • Haustþing Þórbergsseturs féll því miður niður niður vegna anna við móttöku erlendra ferðamanna, og samstarfsaðilinn Samtök um eyðibýli gat því miður ekki verið með eins og áætlað hafði verið, en fyrirhugað var að fjalla um eyðibýli og forn býli í Suðursveit. Það efni bíður kynningar síðar.

Það er ánægjuleg þróun að ferðamenn eru nú einnig að sækja Ísland heim á veturna í auknu mæli, birtan í desember og janúar er eftirsóknarverð fyrir ljósmyndara, ,,einstök í öllu heiminum”, segja þeir, - og norðurljósadans á himni vekur hástemmda hrifningu. Í bland við þetta eru ferðamennirnir vitaskuld að leita eftir fræðslu og samskiptum við fólkið í landinu. Þá er sannarlega göfugt hlutverk að geta kynnt fyrir þjóðum heims sögu okkar og menningu og þau listaverk sem við eigum dýrust sem þjóð, þ.e. bókmenntir vorar allt frá fyrstu tíð til okkar daga.

Hönnuðir

Arkitekt og hönnuður byggingar eru Sveinn Ívarsson og Jón Þórisson. Hönnuður sýningar er Jón Þórisson. Textahöfundur sýningar er Jón Hjartarson leikari.

Upplýsingar

Í anddyri Þórbergsseturs er upplýsingamiðstöð þar sem starfsmenn Þórbergsseturs fræða gesti um starfsemi setursins, Þórberg Þórðarson og sögu Suðursveitar. 

Gestakomur


Gestir í dag: ... 145
Gestir þennan mánuð: ... 6226
Gestir á þessu ári: ... 24249