Hrossakjötsveisla og bridgehátíð 2019
Hin árlega hrossakjötsveisla og bridgehátíð verður haldin í Þórbergssetri 30. og 31. mars næstkomandi. Útlit er fyrir ágæta þátttöku, en byrjað verður að spila kl 13:00 á laugardeginum og spilað svo lengi sem kraftar endast. Á sunnudeginum verður byrjað spila aftur kl.10:00 og mótinu lýkur í síðasta lagi kl 15:00. Hægt er að fá upplýsingar og skrá þátttöku í síma 893 2960 eða senda skilaboð á netfangið hali@hali .is.
Vegna fjölda fyrirspurna setjum við inn verðskrá fyrir mótið, nægur tími er að panta máltíðir þegar komið er á staðinn. .Mótsgjald er 3000 krónur. Gisting á Hala kostar 10.000 krónur á mann í tvær nætur í tveggja manna herbergi, en 7000 krónur í eina nótt og morgunverður innifalinn. Eins manns herbergi í tvær nætur kostar 12000 krónur en 9000 krónur í eina nótt. Einnig er hægt að panta gistingu í Skyrhúsinu sími 8998384 og á Gerði sími 4781905.
Boðið verður upp Halahangikjöt á föstudagskvöldi fyrir svanga ferðalanga, máltíðin kostar 1800 krónur. Einnig verður boðið upp á kjötsúpu í hádeginu á laugardag fyrir 1850 kr á mann.
Hrossakjötsveisla á laugardagskveldi og Halableikja í hádegismat á sunnudeginum ásamt kaffi kostar kr 7000 per mann.
Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir.